Granít-Drangar
Granít-drangarnir minna á stuðlabergið okkar, blágrýtið. Þeir eru þó miklu sterkari þar sem granítið er eldra og harðara. Póleruð framhliðin gerir skriftina endingargóða og auðveldar viðhald. Drangarnir koma í tvemur stærðum. Sá lægri getur hæglega rúmað fleiri en eitt nafn og sá stærri er upplagður fyrir eitt, tvö eða fleiri nöfn.
Báðir þessir steinar henta vel sem minnisvarðar.